flugfréttir

Tvær fyrstu Airbus A380 og fyrsta A320 þotan á leið á söfn

- A320 (MSN1) var smíðuð árið 1987 og A380 vélarnar árið 2005

7. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 23:36

Ein af Airbus A380 tilraunaþotunum

Til stendur að flytja tvær fyrstu Airbus A380 risaþoturnar sem framleiddar voru á flugsöfn en um er að ræða tvær af þeim fimm tilraunavélum sem voru notaðar í flugprófanir fyrir 12 árum síðan.

A380 þoturnar tvær verða ferjaðar ásamt fyrstu Airbus A320 vélinni sem smíðuð var á sínum tíma á sitthvort safnið en önnur risaþotan fer á Air and Space Museum safnið í Le Bourget en hin á Aeroscopia safnið í Toulouse.

Fyrstu A380 vélarnar tvær voru smíðaðar árið 2005 en önnur þeirra, MSN4, kemur með fjórum GP7200 hreyflum og hefur hún komið við á fjölda flugsýninga um allan heim.

Hin risaþotan, MSN2, kemur með Trent 900 hreyflum og var hún einnig smíðuð fyrir 12 árum síðan en til stóð að afhenda hana til sádí-arabísku konungsfjölskyldunnar sem VIP þota en konungsdæmið hætti við pöntunina árið 2014.

Airbus A380 (MSN2) verður flutt á Aeroscopia-safnið í Toulouse sem opnaði árið 2015 ásamt fyrstu Airbus A320 þotunni, MSN1, sem smíðuð var fyrir 30 árum síðan, árið 1987.

Alls voru fimm Airbus A380 þotur sem voru í tilraunaflotanum og ætlaði Etihad Airways að taka eina af þeim en félagið ákvað síðar að fá nýtt eintak úr söluframleiðslunni.

Fyrsta Airbus A320 þotan flaug í fyrsta sinn árið 1987







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga