flugfréttir
Flugvöllurinn í St. Etienne mun hætta að greiða styrki til Ryanair og Pegasus
- Munu bæði hætta að fljúga til St. Etienne
Flugvélar Ryanair
Flugvöllurinn í St. Etienne í Frakklandi ætlar að hætta að greiða styrki til Ryanair og Pegasus Airlines en í kjölfar þess hafa bæði flugfélögin ákveðið að hætta að fljúga til frönsku borgarinnar.
Með því leggst af allt lágfargjaldaflug til St. Etienne og verður franska flugfélagið Atlas Atlantique Airlines eina flugfélagið sem flýgur um völlinn.
Ryanair hefur flogið til St. Etienne til og frá Fes í Marokkó og Porto í Portúgal en Pegasus Airlines
hefur flogið til frönsku borgarinnar frá Istanbúl.
Með þessu mun farþegafjöldinn falla niður úr 150,000 farþegum á ári niður í aðeins 10 þúsund farþega
á ári sem samsvarar 830 farþegum á mánuði.
Samkvæmt fréttum þá var flugvöllurinn í St. Etienne að eyða 83 milljónum króna í styrki á ári til
Ryanair á sama tíma og 253 milljóna króna tap var á rekstrinum árið 2016.
St.Etienne er lítil borg í austurhluta Frakklands með 178,000 íbúa en næsti flugvöllur
í nágrenni borgarinnar er í Lyon sem er í um 60 kílómetra fjarlægð en þangað fljúga 54 flugfélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.