flugfréttir

Þessi 26 flugfélög munu fljúga um Keflavíkurflugvöll í ár

- Annað hvert flug á vegum Icelandair og fjórða hvert á vegum WOW Air

21. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:00

Alls verða 26 flugfélög sem munu fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli á þessu ári

Alls verða 26 flugfélög sem munu fljúga um Keflavíkurflugvöll í sumar sem er tveimur flugfélögum færra samanborið við sumarið í fyrra þegar 27 flugfélög flugu til og frá landinu.

Þrátt fyrir það verða umsvifin meiri þar sem áfangastöðum hefur fjölgað auk þess sem tíðni hefur aukist til nokkurra áfangastaða.

Tilkynnt var í byrjun mánaðarins að Air Canada ætlaði sér að hefja flug til landsins í sumar og var það síðasta áætlunarflugfélagið til að boða komu sína í bili og er ekki gert ráð fyrir að fleiri bætist við í hópinn.

„Við búumst ekki við fleirum en það gæti dottið inn eitt og eitt leiguflugfélag“, segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

Algengt er að flugfélög sæki um pláss á Keflavíkurflugvelli sem og öðrum flugvöllum í október á haustin og í nóvember fá þau svör frá erlendu fyrirtæki sér um að úthluta plássum fyrir Keflavík.

Því næst fær Isavia lista yfir þau pláss sem flugfélögin hafa sótt um og hafa flugfélög frest fram til lok janúar til að staðfesta komu sína eða skila plássinu ef þau vilja hætta við.

Hér að neðan má sjá lista yfir þau flugfélög sem munu fljúga til landsins yfir árið

Athugið: Listinn miðast við fjölda flugferða (brottfarir og komur) frá 1. janúar 2017 fram til 28. október

Um helmingur af þeim farþegaflugvélum sem munu fara um Keflavíkurflugvöll í ár eru vélar Icelandair sem telur 50.2 prósent af öllu því áætlunarflugi sem fer um völlinn.

WOW Air kemur í 2. sæti með 27.2% umsvif og þá er easyJet í 3.sæti með 4.5 prósent af allri flugumferðinni sem mun fara um Keflavík.

Tekið skal fram að tölurnar um brottfarir og komur miðast ekki við allt árið en stuðst var við upplýsingar sem ná frá 1. janúar 2017 fram til enda október.

Hægt er að smella á skífuritið til að sjá stærri útgáfu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga