flugfréttir

Prófanir hafnar að nýju með fyrstu indversku farþegaflugvélina

- 29 ár frá því að þróun hófst á Saras-flugvélinni

22. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:09

Saras er fyrst farþegaflugvélin sem smíðuð hefur verið á Indlandi

Indverjar hafa ákveðið að halda áfram að þróa og smíða Saras- þotuna sem verið hefur í smíðum í landinu frá árinu 2004 en hætt var við verkefnið í fyrra.

Fyrstu drög að indverski farþegaflugvél má rekja aftur til níunda áratugarins þegar fyrirtækinu National Aerospace Laboratories (NAL) var falið að rannsaka hagkvæmni þess að Indlandi myndi hefja framleiðslu á flugvél til að koma til móts við aukna eftirspurn í farþegaflugi í landinu.

Indland á þó langt í land með að vera í samkeppni í farþegaþotusmíði þar sem önnur Asíulönd á borð við Kína og Japan eru nú þegar að koma með sínar eigin farþegaþotur á markaðinn.

Í nóvember árið 1990 var ákveðið að hefja leit að samstarfsaðilum til að koma að verkefninu og stóð upphaflega til að fara í samstarf við Rússa en þeir hættu fljótlega við vegna efnahagsvandamála.



Saras- flugvélin flaug sitt fyrsta flug árið 2004

Ákveðið var að smíða tveggja hreyfla skrúfuflugvél sem tæki 14 farþega sem gæti athafnað sig með flugbrautarlengd upp á 600 metra.

Fyrsta Saras-tilraunaflugvélin flaug jómfrúarflugið frá flugvellinum í Bangalore í maí árið 2004 og skömmu síðar fékk NAL pöntun frá inverska flughernum í fimmtán Saras-flugvélar.

Það setti þó svartan blett í framleiðsluna er önnur Saras- tilraunavélin fórst í mars árið 2009 með þeim afleiðingum að þrír í áhöfn vélarinnar létu lífið.

Flugvélaframleiðandinn fékk ekki meira fjámagn til verkefnisins árið 2013 og í fyrra var ákveðið að hætta við framleiðslu vélanna.

Það var ekki fyrr en þann 14. febrúar sl. að ákveðið var að endurverkja tilraunaverkefnið og taka upp þráðinn að nýju en talið er að Indland þurfi á nokkur hundruðum flugvéla á að halda sem geta flogið með 30 farþega milli afskekktra héraða í landinu.

Tilraunir með Saras-flugvélian hafa nú hafist að nýju en talið er að það geti tekið allt að 3 ár þar til vélin fái flughæfnisvottun en eftir það verður hægt að afhenda fyrstu eintökin.

Þá eru uppi hugmyndir um að hefja þróun á stærri útgáfu af vélinni sem gæti tekið allt að 70 farþega en það veltur þó allt á fjármagni frá stjórnvöldum á Indlandi.

Flugprófanir munu hefjast að nýju á næstu dögum







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga