flugfréttir

Orsök flugslyss í Kólumbíu: Fóru í flugtak í meðvindi

- Voru ekki meðvitaðir um vindáttina

24. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:04

Slysið átti sér stað þann 20. desember 2016 á flugvellinum í Puerto Carreno í Kólumbíu

Rannsóknarnefnd flugslysa í Kólumbíu hefur komist að því að orsök flugslyss, sem átti sér stað í Kólumbíu er fraktþota af gerðinni Boeing 727-200F fórst eftir að hafa náð að hefja sig of seint á loft í desember 2016 sé sú að vélin fór í flugtak í meðvindi.

Slysið, sem átti sér stað þann 20. desember, náðist á myndband þar sem sjá mátti vélina bruna á miklum hraða út af brautinni og í gegnum grindverk og áfram út í móa.

Vélin náði að lokum að hefja sig á loft en missti hæð og fórst í um 8 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum og varð alelda.

Í bráðabirgðarskýrslu, sem gefin hefur verið út, kemur fram að flugmennirnir voru ekki meðvitaðir um vindáttina en tvær aðrar vélar, sem fóru í flugtak skömmu áður, notuðu braut 07 þar sem vindstefnan var 10°.

Samkvæmt upplýsingum úr hljóðrita vélarinnar kemur fram að flugmenn Boeing 727 þotunnar hafi ekið að brautarenda 25 og farið í loftið af henni með vindinn í bakið.

Fram kemur að engin flugumferðarstjórn hafi verið á Puerto Carreno flugvellinum eftir klukkan 15:20 en vélin fór í flugtak kl. 17:20.

Flugvélin reif með sér 13 metra af grindverkinu í kringum völlinn áður en vélin rakst utan í tré en við það brotnaði af hægra hjólastellið og flapsi á hægri væng.

Í upptökum úr hljóðrita tilkynna flugmennirnir um leka í vökvakerfi auk þess sem að einn af þremur hreyflum vélarinnar hafi misst afl.

Vélin náði að hefja sig á loft og klifra upp í 790 fet og hélst á lofti í um það bil tvær mínútur áður en hún missti hæð og féll til jarðar.

Fram kemur að árekstrarvari vélarinnar hafi gefið frá sér hljóðviðvaranir og þá reyndu flugmennirnir að losa sig við eldsneyti áður en hún fórst.

Vélin var frá flugfélaginu AeroSucre og voru sex manns í áhöfninni en aðeins einn lifði slysið af.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga