flugfréttir

CPH lætur undan þrýstingi - Neyðarbrautin fær að vera áfram

- 12/30 brautin verður færð um set og gerð styttri til að byrja með

2. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:23

Airbus A330 breiðþota SAS í lendingu á flugvellinum í Kaupmannahöfn

Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn hefur ákveðið að halda 12/30 brautinni á flugvellinum eftir mikinn þrýsting frá flugfélögum og öðrum hagsmunaaðilum sem hafa barist fyrir því að brautinni verði lokað.

Í framkvæmdaráætluninni „Expand CPH“ sem Kaupamannahafnarflugvöllurinnn birti árið 2014 voru kynntar framkvæmdir við stækkun vallarins sem fela í sér meðal annars viðbótarbyggingu á flugstöð sem mun teygja sig til suður og mun hún ná yfir þann stað þar sem 12/30 brautin þverar hinar tvær flugbrautir vallarins.

12/30 brautin er einskonar „neyðarbraut“ þeirra Dana en brautin er eingöngu notuð þegar mikið hvassviðri gengur yfir í Kaupmannahöfn með stífri vestanátt og austanátt en að öllu jöfnu eru tvær aðrar samsíða brautir notaðar í langflestum tilvikum.

12/30 brautin á CPH merkt með rauðu á kortinu

SAS hefur að undanförnu barist fyrir því að brautinni verði ekki lokað og fór málið inn á borð samgönguráðuneytisins danska um jólin þar sem flugmenn lýstu yfir miklum áhyggjum sínum yfir lokun brautarinnar.

Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn hefur nú ákveðið að halda brautinni a.m.k. til næstu 10 til 12 ára en þó með því skilyrði að hún verði stytt úr 2,400 metrum niður í 1,600 metra.

Það þýðir að aðeins smærri flugvélar á borð við ATR72 frá Air Alsie, Danish Air Transport (DAT) og CRJ900 frá SAS munu geta notað brautina þegar hún verður í notkun.

Brautin verður færð um set og verður núverandi 12/30 braut lokað eftir að ný 12/30 braut verður tekin í notkun en framkvæmdirnar munu kosta 4.5 milljarða króna.

12/30 brautin þverar hinar flugbrautirnar tvær. 04R/22L er lárétt að ofan á myndinni og brautarendinn á 22R sést í hægri jaðar myndarinnar

„Nokkur flugfélög hafa lýst yfir áhyggjum sínum með lokun brautarinnar sem átti að loka innan fimm ára og þar af leiðandi höfum við ákveðið að setja 300 milljónir króna (DKK) í að færa brautina svo hún geti verið áfram í notkun þar til að nauðsynlegt verður að lengja hana á ný“, segir Thomas Woldby, framkvæmdarstjóri CPH.

„Þetta er stór fjárfesting en við erum tilbúnir í að gera þetta fyrir viðskiptavini okkar en við munum þurfa að loka brautinni svo endanlega þegar stækkunin mun eiga sér stað þegar flugvöllurinn mun geta tekið á móti 40 milljónum farþegum á ári“, segir Woldby.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga