flugfréttir
Boeing 737 MAX 8 komin með flughæfnisvottun frá FAA
- Undirbúa afhendingar á fyrstu vélunum
Ein af Boeing 737 MAX 8 tilraunaflugvélunum
Boeing 737 MAX 8 hefur fengið flughæfnisvottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og hefur vélin því fengið leyfi til að hefja áætunarflug með farþega.
Boeing vinnur nú að því að undirbúa fyrstu afhendinguna til viðskiptavina á næstu
mánuðum en Southwest Airlines mun fá fyrstu vélina afhenta.
Flugprófanir hafa staðið með Boeing 737 MAX 8 í eitt ár og hafa fjórar tilraunavélar
tekið þátt í þeim prófunum sem enda með útgáfu á flughæfnisvottun.
Boeing fékk afhent skírteini sem kallast „Amended Type Certification“ sem vottar
að Boeing 737 MAX 8 standist þær kröfur sem gerðar eru til hennar með öryggi
og áreiðanleika að leiðarljósi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.