flugfréttir

Flugbjórinn Betsy er bruggaður til að drekka í 35.000 fetum

- Cathay Pacific kynnir „Betsy Beer“ sem heldur bragðinu í háloftunum

20. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:50

Betsy Beer er fyrsti bjórinn sem er ætlað að halda bragðinu þrátt fyrir að hans sé neytt í 35.000 fetum

Flugfélagið Cathay Pacific hefur kynnt og hafið sölu á bjór sem er sérstaklega bruggaður til þess að drekka í 35.000 fetum.

Bjórinn, sem hetir „Betsy“ í höfuðið á fyrstu flugvél Cathay Pacific sem var af gerðinni Douglas DC-3, verður í fyrstu borinn fram á First Class og Business Class farrými um borð í flugi frá Hong Kong til áfangastaða í Evrópu á borð við London Heathrow, London Gatwick og Manchester.

Þrýstingsmunur í farþegarými í flugvélum breytir skynjun bragðlaukanna sem er ástæða þess að matur smakkast öðruvísi í háloftunum og það sama á við um bjór og aðra drykki.

En með tilkomu rannsóknar var þróuð sérstök tækni við bruggun á Betsy-bjórnum í samvinnu við Hong Kong Beer Company og varð útkoman bjór sem smakkast alveg eins í háloftunum sem og á jörðu niðri.

„Við vitum að þegar þú ert að fljúga þá smakkast allt öðruvísi. Flugfélög hafa komið til móts við þessum breytingum er kemur að flugvélamat en enginn annar hefur hingað til reynt að bæta það hvernig bjórinn smakkast í háloftunum“, segir Julian Lyden hjá markaðsdeild Cathay Pacific.

Einnig verður hægt að kaupa „Betsy Beer“ í biðstofum á Heathrow-flugvellinum og í Hong Kong en flugfélagið segir að þetta sé fyrsti bjórinn sem framleiddur er til að halda sama bragðinu þótt hann sé drukkinn í farflugshæð.

Myndband af Facebook-síðu Cathay Pacific:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga