flugfréttir
Finnair leitar að flugmönnum tímabundið á Airbus A330
- Skortir flugmenn á A330 þoturnar vegna þjálfun flugmanna á Airbus A350
Stjórnklefi á Airbus A330 þotu
Finnair leitar nú að fjölda flugmanna sem hafa tegundaráritun á Airbus A330 breiðþoturnar sem félagið hyggst ráða tímabundið í sex mánuði yfir sumartímann.
Finnair hefur fengið nýsjálensku ráðningarskrifstofuna Rishworth Aviation til að sjá
um ráðningarnar en það fyrirtæki sérhæfir sig í starfsmannaráðningum
í flugiðnaðinum.
Töluverður skortur er á flugmönnum á Airbus A330 þoturnar hjá Finnair en félagið
hefur átta slíkar breiðþotur í flota sínum en margir flugmenn, sem hafa flogið þeim
vélum hjá félaginu, hafa verið að gangast undir þjálfun á nýju Airbus A350 vélarnar.
Þeir flugmenn sem verða ráðnir til starfa hjá Finnair munu fljúga Airbus A330 þotunum
frá Helsinki til áfangastaða á borð við Peking, Xian og Delhí.
Sumarvertíðin sem fer að byrja hjá Finnair verður sú stærsta í sögu félagsins
og hefur Finnair aldrei verið með eins margar breiðþotur í flotanum.
Félagið mun fljúga 87 flug á viku til Asíu og 18 flug til Norður-Ameríku og þar af leiðandi
þarf Finnair á fleiri flugmönnum að halda.
Rishworth Aviation er leiðandi fyrirtæki í starfsmannaráðningum fyrir flugfélögin
og hefur fyrirtækið á skrá hjá sér yfir 90.000 flugmenn frá 150 löndum en fyrirtækið
hefur útibú meðal annars í Auckland, Stokkhólmi, Kína, Indlandi, Japan, Víetnam, Indónesíu
og á Englandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.