flugfréttir
Malindo Air mun fljúga fyrsta flugið í heimi með 737 MAX
- Norwegian og Southwest koma næst á eftir
Boeing 737-800 þota Malindo Air í lendingu á flugvellinum í Kuala Lumpur
Malasíska lágfargjaldafélagið Malindo Air verður fyrsta flugfélagið í heimi til að hefja áætlunarflug með nýju Boeing 737 MAX vélunum þótt að Southwest Airlines verði fyrsta flugfélagið til að fá fyrstu Boeing 737 MAX afhenta.
Þetta var tilkynnt á Langkawi International Maritime and Aerospace sýningunni sem hófst í dag
í Malasíu.
Southwest Airlines mun fá fyrstu Boeing 737 MAX þotuna þann 8. maí en félagið ætlar ekki að fljúga henni í farþegaflugi
fyrr en í október í haust.
Því næst mun Norwegian fá sitt fyrsta eintaj af Boeing 737 MAX í maí en flugfélagið norska mun hefja áætlunarflug
með henni seinnipartinn í júní.
Malindo Air mun fá fyrstu Boeing 737 MAX þotuna afhenta í vor en félagið mun fljúga fyrsta Boeing 737 MAX flugið á undan
Norwegian og verður því fyrsta félagið í heimi til þess.
„Með þessu nýju vélum munum við geta flogið flug sem er allt að 7:30 klukkustunda langt og með því
getum við geta flogið fleirum ferðamönnum til landsins“, sagði Chandran Rama Muthy, framkvæmdarstjóri Malindo Air.
Lion Air Group á 49% í Malindo Air er en Lion Air pantaði á sínum tíma 200 Boeing 737 MAX þotur
og mun Malindo Air fá fjórar slíkar þotur afhentar á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.