flugfréttir
Finnair hættir flugi tímabundið til Miami
- Skortur á flugmönnum og flugvélum
Airbus A330 þota Finnair
Finnair mun setja flug til Flórída á hilluna með því að hætta tímabundið að fljúga til Miami en félagið hóf áætlunarflug þangað árið 2015.
Ástæðan er sögð vera vegna skorts á flugmönnum og flugvélum og mun félagið gera hlé á Miami-fluginu
í sumar frá 4. maí fram til 29. september en þá mun félagið einnig minnka tíðni á flugi sínu til Chicago og taka út tvö flug í viku í maí.
Finnair mun halda áfram að bjóða upp á Miami sem áfangastað en farþegar munu fljúga með samvinnufélögum
félagsins sem eru American Airlines, British Airways og Iberia sem eru öll meðlimir í oneworld bandalaginu.
Finnair mun hefja aftur flug að nýju til Miami frá og með 1. október 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.