flugfréttir

Tveir íbúar kvörtuðu 2.000 sinnum undan hávaða frá Calgary-flugvelli árið 2016

- 6.458 kvartanir bárust árið 2016 - Þar af helmingur frá tveimur manneskjum

22. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:20

Eldri kona í síma horfir á flugvél í flugtaki út um gluggann

Árið 2016 bárust yfir 6 þúsund kvartanir undan hávaða frá flugvellinum í Calgary í Kanada en helmingurinn af þessum kvörtunum komu frá tveimur manneskjum.

Í fyrra fengu flugmálayfirvöld í Calgary alls 6.458 kvartanir vegna hávaða frá flugvélum en einn íbúi hringdi inn 1.707 sinnum til að kvarta undan hávaða sem samsvarar því að hann hafi lagt inn kvörtun 4 sinnum á dag.

Annar íbúi í borginni kom 1.094 kvörtunum á framfæri árið 2016 og kvartaði hann því undan hávaða þrisvar sinnum á dag, annað hvort símleiðis eða í gegnum vefsíðu sem tekur við kvörtunum.

Airbus A330 þota frá KLM í aðflugi að flugvellinum í Calgary

Bob Sartor, framkvæmdarstjóri Calgary Airport Authority segir að þrátt fyrir reglulegar kvartanir og þar á meðal frá 8 einstaklingum, sem voru mjög iðnir við að kvarta undan flugvallarhávaða á hverjum degi, þá hefur töluvert dregið úr kvörtunum frá almenningi en 39% færri kvartanir bárust í fyrra samanborið við árið 2015.

Metfjöldi kvartanna rigndi inn árið 2015 í kjölfar þess að ný flugbraut var tekin í notkun árið 2014 en þá var fjöldi íbúa úr nokkrum hverfum sem sögðu að flugvélahávaðinn vegna brautarinnar héldi þeim andvaka á nóttunni.

Í kjölfar þess var aðflugslínu að nýju brautinni breytt og fækkaði kvörtunum eftir það að undanskildum átta einstaklingum sem hafa hringt inn stanslaust og þar á meðal tvær manneskjur sem báðar hafa hringt inn kvörtun yfir 1.000 sinnum á einu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga