flugfréttir
Prófunum með Airbus A350-1000 lokið í Suður-Ameríku
Airbus A350-1000 tilraunaþotan á flugvellinum í La Paz í Bólivíu
Airbus hefur lokið við flugprófanir á Airbus A350-1000 vélinni í Suður-Ameríku en þar voru gerðar tilraunir með vélina á flugvelli í mikilli hæð yfir sjávarmáli auk þess sem prófanir voru gerðar í miklum hita og raka.
Airbus A350-1000 tilraunavélinni var flogið fyrst til Bólivíu þar sem vélin var prófuð á flugvöllum
í þremur borgum en völlurinn í Cochabamba er í 8.300 feta hæð.
Þá var vélin einnig prófuð á El Alto flugvellinum í höfuðborginni La Paz sem er hæsti alþjóðaflugvöllur í heimi
í 13.300 feta hæð sem samsvarar 4 kílómetra hæð yfir sjávarmáli.
Þriðji viðkomustaðir vélarinnar í Suður-Ameríku var á Ernesto Corotissoz flugvöllurinn í borginni Barrangquilla
í Kólumbíu þar sem hitinn sveiflaðist yfir daginn frá 8°C upp í 32 gráður.
Tilraunavélin lenti nokkrum sinnum á hverjum flugvelli á meðan tækjabúnaður um borð safnaði gögnum
með upplýsingum um hegðun vélarinnar hverju sinni en gert er ráð fyrir að A350-1000 fái vottun til að
athafna sig á háum flugvöllum síðar á þessu ári.
Alls verða þrjá Airbus A350-1000 tilraunavélar sem munu gangast undir flugprófanir þar sem þær verða
látnar fljúga í gegnum mjög krefjandi aðstæður þar sem virkilega mun reyna á færni og þolmörk vélanna
sem verður langt yfir þau mörk sem gert er ráð fyrir að þær muni ganga í gegn um í venjulegu farþegaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.