flugfréttir
Pilatus PC-12 vinsælust í heimi í sínum flokki árið 2016
- Munu afhenda 1.500 eintakið í ár af Pilatus PC-12
Pilatus PC-12 flugvélin
Engin einkaflugvél í viðskiptafluginu með skrúfumótor seldist í eins mörgum eintökum og PC-12 flugvélin frá Pilatus Aircraft flugvélaframleiðandanum svissneska.
Pilatus PC-12 er vinsælasta skrúfuflugvélin í flokki „business aircraft“ í heimi en í fyrra seldust 91 eintak af vélinni
en framleiðandinn gerir ráð fyrir að afhenda eintak númer 1.500 af vélinni í sumar.
Pilatus PC-12 flaug sitt fyrsta flug árið 1991 en kom á markaðinn árið 1994 en vélin var fyrst kynnt til sögunnar
á einkaþotusýningunni NBAA árið 1989.
Nýjasta kynslóðin af vélinni, Pilatus PC-12NG, nær hraðanum 285 kts sem samsvarar 528 km/klst hraða
en farþegarýmið hefur verið gert sérstaklega hljóðeinangrað og þá hafa verið gerðar endurbætur á skrokki
vélarinnar til að minnka loftmótsstöðu sem eykur flugþol hennar og farflugshraða.
Pilatus PC-12 á Courchevel-flugvellinum í svissnesku ölpunum
„Allt Pilatus-teymið hefur unnið hörðum höndum að því að ná árangri í að gera vélina enn betri á sama tíma
og viðskiptaumhverfið er krefjandi“, segir Ignaz Gretener, varaformaður Pilatus Aircraft.
Eigendur Pilatus PC-12 vélanna virðast vera gjarnir á að halda í sínar vélar en aðeins eru um 3.7% allra
PC-12 flugvélanna til sölu sem endurspeglar eiginleika vélanna í hópi flugvéla af þessari tegund og því ekki margir sem vilja skipta þeim út.
10 ára gömul Pilatus PC-12 einkaflugvél heldur einnig gangverði sínu mjög vel en 2007 árgerð af vélinni
selst á aðeins 81% af verði nýrrar vélar beint frá framleiðanda og rýrnar hún því aðeins um 2,2 prósent
í verði á ári sem er langt undir verðrýrnun á öðrum sambærilegum flugvélum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.