flugfréttir

SAS flaug jómfrúarflugið til Færeyja um helgina

- 12 ára einokun á enda á fluginu milli Þórshafnar og Köben

27. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:12

Airbus A320 þota SAS á flugvellinum í Vágar í Færeyjum sl. laugardag

SAS (Scandinavian Airlines) flaug sl. laugardag (25. mars) sitt fyrsta flug í sögu félagsins til Færeyja og lauk þar með 12 ára einokun á flugleiðinni milli Vágar og Kaupmannahafnar en Atlantic Airways hefur hingað til verið eina flugfélagið sem hefur flogið milli Færeyja og Danmörku.

Um hundrað Færeyingar voru samankomnir á hinni 340 ára gömlu Fútastova þar sem heljarinnar veisla fór fram í tilefni jómfrúarflugsins og létu fáir rigninguna á sig fá.

SAS sendi markaðsstjóra félagsins á staðinn til að sjá um kynningu fyrir viðstadda á flugi félagsins til Færeyja en um 200 manns voru viðstaddir athöfnina.

„Mjög margir voru spenntir fyrir flugi SAS hingað og margir voru með ýmsar spurningar og þar á meðal voru margir sem vildu forvitnast um flugið sjálft og hvernig sé að lenda flugvélinni hér í Færeyjum“, sagði Mariam Skovfoged, upplýsingafulltrúi SAS.

Airbus A320 þota SAS í Færeyjum eftir jómfrúarflugið

„Það er enginn vafi á því að Færeyja-markaðurinn er alveg nógu stór fyrir tvö flugfélög og auðvitað verður mikil samkeppni sem fer núna í gang sem er eitthvað sem við höfum ekki kynnst í meira en 10 ár“, sagði Jákup Sverri Kass, framkvæmdarstjóri flugvallarins í Vágar.

Fyrsta flugið var flogið með „Amled Viking“ sem er Airbus A320 þota en vélin fór í loftið frá flugvellinum í Kaupmannahöfn kl. 9:39 og lenti klukkan 10:27 að staðartíma í Færeyjum en flugtíminn er um 2 klukkustundir.

Danir geta bókað flug til Færeyja frá 599 dönskum krónum aðra leiðina sem samsvarar 9.575 krónum en hefðbundið fargjald er um 23.000 krónur fyrir báðar leiðir.

Fleiri myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga