flugfréttir

Boston Logan fær fyrsta áætlunarflugið með Airbus A380

29. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:49

Airbus A380 risaþota British Airways á Logan-flugvellinum í Boston sl. sunnudag

Logan-flugvöllurinn í Boston tók sl. sunnudag við fyrsta risaþotufluginu þegar Airbus A380 þota British Airways lenti eftir flug frá London Heathrow.

Þær Airbus A380 risaþotur sem hafa hingað til lent í Boston hafa haft þar skyndilega viðkomu þar sem þeim var beint af áætlaðri flugleið en núna í fyrsta sinn hefur flugfélag tekið upp áætlunarflug þangað með risaþotunni.

Logan-flugvöllurinn er útbúinn til þess að taka við Airbus A380 og hefur flugvöllurinn tvöfaldan landgang sem flýtir fyrir því að koma farþegum til og frá borði.

Risaþotur British Airways taka 469 farþega en félagið mun einnig fljúga áfram til Boston með Boeing 777, Dreamliner og með júmbó-þotunni.

Til stóð að British Airways myndi hefja flug með Airbus A380 til Boston í febrúar en seinkun varð á framkvæmdum á nýtti setustofu í tengslum við flugið í Terminal E.

Emirates og Lufthansa hafa bæði skoðað þann möguleika að að hefja flug með Airbus A380 til Boston og er gert ráð fyrir því að þau muni fljúga fyrstu risaþotuflugin til Logan-flugvallarins síðar á þessu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga