flugfréttir
Embraer E195-E2 flaug fyrsta flugið í gær
- Jómfrúarflugið þremur mánuðum á undan áætlun
Upphaflega stóð til að Embraer E195-E2 þotan myndi fljúga sitt fyrsta flug í júlí
Nýja Embraer E195-E2 þotan hefur flogið sitt fyrsta tilraunaflug frá verksmiðjum Embraer í São José dos Campos í Brasilíu og það á undan áætlun.
Embraer E195-E2 er stærsti meðlimurinn af E2 vélunum sem er næsta kynslóð af farþegaþotum Embraer en 22 dagar eru liðnir frá því vélinni var ýtt út úr samsetningarsal þann 7. mars.
Til stóð að fljúga vélinni í fyrsta sinn í júlí í sumar og átti fyrsta flugið sér stað því þremur mánuðum á undan áætlun.
John Slattery, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Embraer, hafði samt lýst því yfir nýlega að það kæmi honum
ekki á óvart þótt að Embraer myndi taka þá ákvörðun að fljúga fyrstu E195-E2 þotunni mun fyrr.
Vélin er fimmta Embraer E2-þotan sem hefur sig á loft af þeim tilraunavélum sem munu taka þátt í flugprófunum en
fjórar Embraer E190-E2 þotur hafa þegar hafið flugprófanir.
Embraer E195-E2 mun koma á markaðinn á fyrri árshelmingi ársins 2019 og verður brasilíska flugfélagið
Azul Brazilian Airlines fyrsta félagið til að fljúga vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.