flugfréttir
Alaska Airlines mun „ættleiða“ yfir 60 Airbus-þotur frá Virgin
- Verða ekki lengur eingöngu með Boeing-þotur
Flugvélar Alaska Airlines á flugvellinum í San Francisco
Alaska Airlines mun ekki lengur geta státað sig að vera einungis með Boeing 737 þotur í flota sínum eins og félagið hefur gert hingað til.
Alaska Airlines tilkynnti í vikunni að félagið ætli að leggja niður merki Virgin America í kjölfar yfirtöku á félaginu
eftir að Alaska Airlines keypti allan hlut í því í apríl í fyrra.
Virgin America hefur 53 Airbus A320 þotur í flota sínum og tíu A319 vélar en leigusamningur á flestum af þessum vélum
mun renna út árið 2024 og hefur Alaska Airlines ákveðið að hafa vélarnar sem hluta af sínum flota næstu sjö árin að minnsta kosti.
Alaska Airlines á þó enn eftir að taka ákvörðun varðandi þær 40 Airbus A320neo og A321neo þotur sem Virgin America
hafði pantað á sínum tíma en þær fyrstu verða afhentar árið 2020.
„Airbus-vélarnar þeirra munu vera með okkur í langan tíma og verðum við því Airbus-viðskiptavinur um ókomna tíð“, segir
Brandon Pedersen, fjármálastjóri Airbus.
Alaska Airlines þarf samt sem áður að huga að því hvernig félagið ætlar að hafa flugflotann sinn til næstu ára
en með yfirtöku Virgin America mun floti félagsins telja 297 þotur en flotinn gæti stækkað upp í 497 vélar á næstu
sjö árum.
Alaska Airlines hefur 156 þotur í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737-400, Boeing 737-700, 737-800 og Boeing 737-900 og -900ER.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.