flugfréttir

Schiphol-flugvöllurinn nær hámarksnýtni á þessu ári

- Hafa tekið í notkun tímabundna flugstöð

4. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:56

Frá Schiphol-flugvellinum í Amsterdam

Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam er að nálgast það að geta ekki tekið við fleiri flugvélum og farþegum en flugvöllurinn er orðin mjög þétt setinn.

Schiphol er þriðji stærsti flugvöllurinn í Evrópu á eftir London Heathrow og Charles de Gaulle í París en 63 milljónir farþega fóru um völlinn árið 2016.

Árið 2015 voru 465.500 lendingar og flugtök á Schiphol-flugvellinum en völlurinn getur tekið við 500.000 hreyfingum á ári en gert er ráð fyrir að hann muni ná þeim fjölda á þessu ári.

Stjórn Schiphol-flugvallarins hefur nú tekið í notkun tímabunda flugstöð til að koma til móts við fjölda þeirra farþega sem fara um flugvöllinn þar sem stækkun vallarins hefur ekki gengið nógu hratt fyrir sig.

63 milljónir farþega fóru um Schiphol-flugvöllinn í fyrra

Jos Nijhuis, framkvæmdarstjóri Schiphol, segist eiga von á því að ný ríkisstjórn í Hollandi muni beita sér fyrir stækkun vallarins sem er löngu orðin tímabær.

„Okkur heyrist á því að nýja ríkisstjórnin ætli að beita sér fyrir því að efla atvinnu og styrkja efnahag landsins og þar á meðal með því að gera úrbætur í flugsamgöngumálum landsins.

Tímabundna flugstöðin var reist þar sem flugvöllurinn hefur ekki náð að annað þeirri fjölgun sem hefur átt sér stað meðal flugfarþega til Amsterdam og sérstaklega meðal þeirra sem fljúga til Amsterdam frá löndum innan Schengen.

Nú þegar er verið að stækka flugstöðina Pier A með fleiri hliðum og verður hluti þeirrar flugstöðvar tekin í notkun á þessu ári en þá er ný flugstöð í smíðum sem verður tekin í notkun árið 2023 en með henni mun Schiphol-flugvöllurinn geta tekið á móti 70 milljónum farþega á ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga