flugfréttir

Framtíð Berlin Tegel fer fyrir þjóðaratkvæðargreiðslu

- 200.000 Berlínarbúar tóku þátt í undirskriftarsöfnun

4. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:01

Frá Tegel-flugvellinum í Berlín

Meirihluti Berlínarbúa er alfarið á móti því að Tegel-flugvellinum verði lokað eftir að Brandenburg-flugvöllurinn nýi verður tekinn í notkun.

Alls hafa 200.000 íbúar Berlínar tekið þátt í kjöri þar sem kosið er um þjóðaratkvæðargreiðslu um framtíð Tegel-flugvallarins sem hefur þjónar Berlínarbúum frá fimmta áratug síðust aldar en sögu vallarins má þó rekja aftur til ársins 1906.

Petra Michaelis-Merzbach, sem hefur yfirhönd með kosningunni, segir að safnast hafi 30 þúsund fleiri umsóknir en nauðsynlegt var til að skjóta málinu fyrir þjóðaratkvæðargreiðslu.

Staðið hefur til að loka Tegel-flugvellinum þegar Brandenburg-flugvöllurinn verður tilbúinn en opnun vallarins hefur verið frestað svo oft að nú er talið er að nýi flugvöllurinn verði of lítill til að anna farþegafjöldanum árið 2018 en þá er talið að Brandenburg-flugvöllur gæti opnað mögulega í fyrsta lagi.

Þjóðaratkvæðargreiðslan mun að öllum líkundum fara fram með næstu kosningum en Þjóðarverjar munu ganga að kjörborðinu þann 24. september í haust.

Hinn sexhyrndi flugturn á Tegel var reistur á áttunda áratugnum

Það gæti þó breyst ef yfirvöld í Berlín ákveða að taka niðurstöðurnar í undirskriftarsöfnuninni gilda og láta hana duga.

Berlín hefur haft þrjá flugvelli undanfarna áratugi sem ertu Tegel, Schöenefeld og Tempelhof en þeim síðasta var lokað árið 2008.

Schöenefeld-flugvöllurinn verður sennilega hafður opin í einhver ár eftir að Brandenburg-flugvöllurinn verður tekinn í gangið en áætlað er að loka honum svo síðar.

Berlínarbúar kunna mjög vel að meta Tegel-flugvöllinn þar sem hann er mjög nálægt miðbænum og aðeins kostar 2,70 evrur að taka lestina inn í miðborgina.

„Borgarbúar í Berlín vita hversu mikilvægt það er að Tegel-flugvöllurinn verði áfram og hvaða áhrif það hefur ef hann verður fjarlægður“, segir Sebastian Czaja, ritari frjálslynda demókrataflokksins í Þýskalandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga