flugfréttir
Boeing 737 frá Malaysia Airlines fór út af í lendingu
Boeing 737-800 þotan frá Malaysia Airlines á flugvellinum í Sibu í gær
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá Malaysia Airlines fór út af flugbraut í lendingu á flugvellinum í Sibu á malasíska hluta eyjunnar Borneó í gær.
Úrhellisrigning var er vélin kom inn til lendingar eftir flug frá Kuala Lumpur en vélin rann út af brautinni til hliðanna
og endaði út á graslendi þar sem hún staðnæmdist með samanfallið nefhjól.
Um borð í vélinni var 61 farþegi og sex manna áhöfn og sakaði engann en vélin var rýmd og fóru farþegar
niður um tvær rennibrautir.
Vélin varð fyrir einhverjum skemmdum í kjölfar atviksins en hún er 2 ára og 8 mánaða gömul
og var afhent ný til Malaysia Airlines haustið 2014.
Í yfirlýsingu frá Malaysia Airlines kemur fram að rannsókn á atvikinu sé nú þegar hafin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.