flugfréttir

Þrálátar bilanir með nýtt flugumferðarkerfi í Hong Kong

- Hefur bilað reglulega frá því kerfið var tekið í notkun í nóvember

10. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:04

Frá flugturninum á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong

Enn og aftur kom upp bilun í nýju flugumferðarstjórnunarkerfi á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong um helgina sem varð til þess að flugumferðarstjórar misstu yfirsýn yfir staðsetningu flugvéla um stundarsakir.

Reglulega hefur komið upp bilun í hinu nýja stjórnkerfi sem tekið var í notkun í nóvember sl. haust en í þetta skipti duttu út upplýsingar um staðsetningu nokkurra flugvéla og þurfti að ræsa til varakerfi.

Vandamálið stóð yfir í um 15 mínútur en í yfirlýsingu kemur fram að bilunin hafi ekki haft áhrif á leiðsögustjórnun flugvéla í lofthelginni yfir Hong Kong þar sem flugumferðarstjórar gátu verið í fjarskiptasambandi við flugvélarnar og gervihnattarsambandi.

Kerfið var tekið í notkun í nóvember í fyrra og hefur verið stanslaust til vandræða

Sérfræðingar í tæknimálum segja að nýja kerfið, sem kallast Raytheon Auto Trac III, sé mjög öruggt kerfi en grunur leikur á að bilunin sé tilkomin þar sem of margir flugumferðarstjórar séu skráðir inn í kerfið á sama tíma.

Jeremy Tam Man-ho, flugstjóri, segir að bilunin sé „tuska í andlitið“ fyrir hið nýja kerfi sem kostaði 22 milljarða króna í uppsetningu en áreiðanleiki kerfisins er sagður vera 99.9 prósent.

„Augljóslega þá er þetta áhyggjuefni. Við erum búin að horfa upp á flugvélar hverfa á skjánum og sjá flugvélar fara of nálægt hvor annarri en það hefur aldrei áður gerst að við þurfum að reiða okkur á varakerfið. Þetta er búið að ganga svona alveg frá því kerfið var tekið í notkun“, segir Man-ho.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga