flugfréttir

Quest Aircraft getur hafið sölu á Kodiak 100 í Evrópu

- Hafa fengið vottun frá EASA

10. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:03

Kodiak 100 flugvél á Reykjavíkurflugvelli í febrúar árið 2015 / Ljósmynd: Karl Georg Karlsson

Kodiak 100 flugvélin bandaríska hefur fengið vottun frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA) og mun framleiðandi vélarinnar, Quest Aircraft, því geta hafið sölu á vélinni í Evrópu.

Kodiak 100 er eins hreyfils hávængja flugvél sem tekur 9 farþega en vélin hefur STOL eiginleika sem þýðir að hún þarf mjög stutta vegalengd fyrir lendingu og flugtak.

Kodiak 100 hefur þrjú, föst hjól og svipar vélin til Cessnu Caravan en þróun vélarinnar hófst árið 1999 og flaug hún sitt fyrsta flug í október árið 2004 en í desember í fyrra hafði Quest Aircraft smíðað yfir 200 eintök af vélinni.

Tóm vegur Kodiak 100 vélin 1,7 tonn en hún var sérstaklega framleidd til að geta borið mikla þyngd og lent á mjög stuttum flugbrautum og hentar því vél í flugi milli flugvalla sem hafa stutta flugbraut en vélin hentar líka vel fyrir gras- og malarbrautir.

Kodiak 100 flugvélin er 10.4 metrar á lengd og hefur 13.7 metra langt vænghaf

Hámarksflugtaksþyngd vélarinnar eru 3,2 tonn en fullhlaðin getur vélin flogið allt að 2.096 kílómetra án þess að taka eldsneyti og getur hún farið upp í allt að 25.000 feta hæð.

„Þetta er stór áfangi fyrir Kodiak 100 vélina. Með STOL eiginleikum sínum býður hún evrópskum flugrekstraraðilum upp á að fljúga til fleiri flugvalla og lendingarstaða sem var þeim mjög erfitt áður fyrr“, segir Rob Wells, framkvæmdarstjóri Quest Aircraft.

Kodiak 100 kom á markaðinn árið 2008

Quest Dealer Rheinland Air Service GmbH í Mönchengladbach í Þýskalandi mun sjá um sölu og dreifingu vélarinnar í Evrópu en fyrirtækið hefur 40 ára reynslu af sölu, viðhaldi og viðgerðum á flugvélum.

Fullhlaðin getur Kodiak 100 vélin hafið sig á loft á innan við 1.000 feta langri braut og þá getur vélin lent og hægt á sér á 705 fetum.

Quest Aircraft afhenti fyrstu Kodiak 100 vélina til Spirit Air árið 2008 en stærsta pöntunin var gerð í vélina í nóvember í fyrra er Sky Trek í Japan pantaði tuttugu vélar af þessari gerð.

Stjórnklefinn í Kodiak 100 vélinni



Kodiak 100 í lendingu á flugvelli nálægt Bolzano í Ölpunum







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga