flugfréttir

Langtímastæðin við Keflavíkurflugvöll full yfir páska

- Mun fleiri Íslendingar á faraldsfæti

13. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:07

Langtímabílastæðið á Keflavíkurflugvelli

Notkun Íslendinga á langtímabílastæðinum á Keflavíkurflugvelli eru orðin það mikil að í augnablikinu eru stæðin orðin full og ekki hægt að leggja fleiri bílum á svæðinu.

Í fréttatilkynningu frá Isavia er þeim farþegum, sem eru á leið til útlanda, bent á að langtímastæðin séu yfirfull og því miður er því ekki hægt að leggja í fleiri stæði og er farþegum bent á að taka rútu, strætó eða láta aka sér út á flugvöll.

Starfsmenn Isavia hafa undanfarna daga unnið að því að flytja bíla af bílastæðunum á önnur svæði og hefur meðal annars verið tekinn undir það hluti af rútustæðum við flugvöllinn en nú þegar hafa yfir 600 bílar verið fluttir og ekki er meira pláss á þeim svæðum sem gert var ráð fyrir að notast við ef þessi staða kæmi upp.

Mun meiri nýting en gert var ráð fyrir

Þetta er mun meiri nýting en gert var ráð fyrir nú yfir páskana en árið 2016 voru rétt rúmlega 2000 bílar í langtímastæðum yfir páskana en núna eru þeir 3000 talsins og aukningin er því gríðarleg.

Bílastæðin voru stækkuð síðast í fyrrasumar og 350 stæðum bætt við. Bílastæðin eru því nú 2.350 talsins og alla jafna er um 43% nýting á þeim.

Nú yfir páskana eru Íslendingar mun meira á faraldsfæti en gert var ráð fyrir í áætlunum og því hefur þessi staða komið upp og er því ljóst að hefja þarf vinnu við að stækka bílastæðin enn frekar svo þau ráði við mesta álagstíma ársins, sem jafnan eru páskarnir.

Isavia vill biðjast afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda flugfarþegum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga