flugfréttir

Myndband: Boeing 737 MAX 9 flýgur sitt fyrsta flug

- Christine Walsh fyrsti kvenflugstjórinn í jómfrúarflugi Boeing

14. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:39

Boeing 737 MAX 9 tilraunaþotan kemur inn til lendingar eftir fyrsta flugið

Boeing flaug í gærkvöldi fyrsta flugið með Boeing 737 MAX 9 þotunni sem fór í loftið frá flugvellinum við verksmiðjur framleiðandans í Renton klukkan 13:52 að vesturstrandartíma eða klukkan 20:52 að íslenskum tíma.

Fyrsta Boeing 737 MAX 9 tilraunavélin var á flugi í 2 klukkustundir og 42 mínútur og lenti aftur í 20 hnúta hliðarvindi en yfirleitt fara nýjar þotur í hliðarvindsprófanir nokkrum vikum eða mánuðum eftir jómfrúarflugið.

Flugstjórinn í fyrsta fluginu Boeing 737 MAX 9 var Christine Walsh en hún er fyrsti kvenkyns kapteinninn sem flýgur jómfrúarflug á nýrri þotu hjá Boeing.

Eins og hálfrar klukkustunda töf varð á fluginu vegna tæknilegra örðuleika sem komu upp í fjarskiptum á milli flugmanna og stjórnstöðvar Boeing en vandamálið leystist að lokum.

Vélinni var flogið upp í 24.000 fet og voru gerðar tilraunir með allar flapsa-stillingar vélarinnar auk þess sem slökkt var á LEAP-1B hreyflunum á flugi og þeir ræstir svo aftur.

Tilraunaflugmennirnir Christine Walsh og Ed Wilson

Eina sem tókst ekki í tilraunafluginu var að fá mynd af vélinni á flugi sem taka átti úr annarri flugvélar en hætt var við að láta þá flugvél „elta“ vélina þar sem mikil skýjahula hvíldi yfir Seattle-svæðinu.

Flugprófanir munu halda áfram að nýju á annan í páskum en næstu 8 mánuðina taka við ítarleg tilraunaflug sem er hluti af flugprófunum sem standa yfir þar til vélin fær flughæfnisvottun.

Boeing 737 MAX 9 er ein af þeim sextán Boeing 737 MAX vélum sem Icelandair mun fá í flotann en félagið á von á sjö þotum af þessari gerð auk níu véla af gerðinni Boeing 737 MAX 8.

Lion Air mun fá fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX 9 þotunni en til stendur að auka flugþol vélarinnar úr 6.500 kílómetrum upp í 6.676 kílómetra eftir árið 2021.

Síðasti tegundin af MAX þotunum, Boeing 737 MAX 7, er enn á teikniborðinu en fæstar pantanirnar í 737 MAX hafa komið í þá tegund en aðeins hafa þrjú flugfélög pantað 55 eintök af þeirri vél sem eru WestJet, Canada Jetliners og Southwest Airlines.

Fleiri myndir:









Myndbönd:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga