flugfréttir

COMAC stefnir á jómfrúarflug C919 í maí

14. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:20

Fyrsta C919 tilraunaþotan

Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC er komin með dagsetningu fyrir jómfrúarflug fyrstu C919 þotunnar og er búið að ákveða að vélinni verði flogið í maí.

Vélin mun hefja sig á loft frá einni af tveimur lengri flugbrautunum á Pudong-flugvellinum í Shanghai sem er 3.800 metra löng og sextíu metra breið en flugvöllurinn hefur alls fjórar flugbrautir með sömu stefnu.

Framkvæmdir eru hafnar á fimmtu flugbrautinni á Pudong-flugvellinum sem verður sérstaklega ætluð COMAC flugvélaframleiðandanum og verður hún 3.400 metra löng en hún verður tilbúin til notkunnar síðar á þessu ári.

C919 þotan átti upphaflega að fljúga sitt fyrsta flug árið 2014 en prótótýpunni var ekki ýtt út úr samsetnignarsal fyrr en í október árið 2015 vegna seinkunar.

ARJ21 þotan er fyrsta farþegaþotan frá COMAC sem hefur í dag smíðað sex eintök af þeirri vél og hafa tvær verið afhentar til Chengdu Airlines og mun C919 koma svo næst á markað.

COMAC ætlar sér að framleiða tvær nýjar tegundir til viðbótar af farþegaþotum sem eiga að koma á markað í náinni framtíð sem er C929 sem verður breiðþota sem mun geta tekið allt að 290 farþega en sú vél gæti komið á markaðinn árið 2026.

Þá er C939 á teikniborðinu en sú vél verður enn stærri breiðþota sem er ætlað að taka allt að 400 farþega en ekki er vitað hvenær hún mun líta dagsins ljós.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga