flugfréttir
Ryanair mun opna stóra viðhaldsstöð í Sevilla
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair ætlar að opna fyrstu stóru viðhaldsstöðina fyrir félagið á Spáni þar sem C-skoðanir munu fara fram á flota félagsins en flugskýlið mun rísa á flugvellinum í Seville snemma á næsta ári.
Framkvæmdir á viðhaldsskýlinu munu hefjast „mjög fljótlega“ en um 150 flugvirkjar, verkfræðingar og
annað tæknilið mun koma til með að starfa í skýlinu þar sem umfangsmiklar skoðanir munu fara fram
á Boeing 737-800 þotum félagsins.
Ryanair er stærsta flugfélagið sem flýgur um Spán er kemur að farþegafjölda en félagið gerði
Seville að starfsstöð sinni árið 2010 en þaðan er flogið til yfir 15 áfangastaða yfir vetrartímann.
Ryanair hefur í dag 384 flugvélar í flota sínum en félagið stefnir á að vera komið með 600 þotur
fyrir árið 2024 en þá gerir félagið ráð fyrir að um 200 milljónir farþega muni fljúga með félaginu á ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.