flugfréttir
Rússar gera tilraunir með hönnun á hreyflum yfir væng
Líkanið í vindgöngum hjá Central Aerohydrodynamic Institute (TsAGI)
Rússar framkvæma nú tilraunir með hönnun af nýrri faregaþotu sem kemur með þotuhreyfla sem eru staðsettir ofan á væng vélarinnar.
Slík hönnun er ekki ný af nálinni en til að mynda hefur hin japanska einkaþota HondaJet hreyfla sem
staðsettir eru fyrir ofan vængina en slíkt kallast „Over-The-Wing Engine Mount“.
Það er rússneska flugrannsóknarmiðstöðin Central Aerohydrodynamic Institute (TsAGI) sem hefur framkvæmt
prófanir með líkan af vélinni í vindgöngum sem kemur með aftursveigða vængi sem eiga að minnka
drag vélarinnar.
Tilgangurinn með tilrauninni er að þróa hönnun á flugvél sem er ætlað að vera hljóðlátari og hagstæðari
en stofnunin segir að með hreyflum sem eru yfir vængjunum megi draga úr þeim hávaða sem vélin
gefur frá sér í flugtaki með tilliti til þeirra íbúa sem búa nálægt flugvöllum.
Þá kemur fram að minni áhætta sé á að aðskotahlutir fari í hreyfla sem eru yfir vængjunum auk þess
sem staðsetningin fyrir ofan vængina býður upp á breiðari hreyfla með stærra ummál.
Ekki kemur fram hvort búið sé að ákveða nýja tegund af farþegaþotu eða hvort einhver flugvélaframleiðandi
tengist tilraununum en stofnunin TsAGI segir að peófanirnar fari fram í tengslum við flugvél sem er á teikniborðinu.
Höfuðstöðvar Central Aerohydrodynamic Institute (TsAGI) í Moskvu
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.