flugfréttir

Fyrstu Beluga XL einingarnar komnar landleiðina til Toulouse

- Tók bílalestina fimm nætur að aka 475 kílómetra leið

19. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:37

Bílalestin með einingarnar í fyrstu Beluga XL flugvélina kemur til Toulouse eftir 5 daga akstur frá norðausturhluta Spánar

Fyrstu stóru einingarnar fyrir nýju Beluga XL flutningavél Airbus voru á dögunum ferjaðar með nokkrum flutningabílum til samsetningarstöðvar Airbus í Toulouse sem nefnist Final Assembly (L34).

Það tók fimm nætur fyrir bílalestina að aka með einingarnar frá verksmiðjum Aernnova í Berantevilla í norðurhluta Spánar til Toulouse en fyrir hefðbundinn fólksbíl myndi ferðalagið taka um 5 klukkustundir á hraðbrautinni.

Fyrsta Beluga XL vélin hefur nú þegar tekið á sig mynd í verksmiðjum Airbus í Toulouse sem hefur smíðað þann grunn sem byggir á Airbus A330-200 þotunni en einingarnar sem komu á dögunum er sérsmíðaðar.

Til samans munu einingarnar mynda fyrstu Beluga XL vélina sem mun svipa að mestu leiti til þeirra Beluga-véla sem Airbus notar í dag til að fljúga flugvélaeiningum á milli verksmiðja.

Framleiðsla á fyrstu einingunni hófst í Aernnova í desember árið 2015 en fyrirtækið hefur framleitt 2.000 einingar sem skrokkur á einni flugvél samanstendur af.

Airbus ætlar að taka þessa nýju kynslóð af Beluga-vélunum í notkun árið 2019 en sú fyrsta mun fljúga sitt fyrsta tilraunaflug á næsta ári.

Airbus kynnti Beluga XL vélina í nóvember árið 2014 en vélin mun koma með Trent 700 hreyflum frá Rolls-Royce en fimm eintök af vélinni verða smíðuð.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga