flugfréttir
Malaysian fyrst flugfélaga til að rekja flugvélar sínar í rauntíma hvar sem er í heiminum
- SITAONAIR AIRCOM FlightTracker verður tekið í notkun árið 2018
Boeing 777-200 þota Malaysia Airlines í aðflugi að flugvellinum í Kuala Lumpur árið 2016
Malaysia Airlines mun verða fyrsta flugfélagið í heiminum til að taka í notkun nýjan og byltingarkenndan búnað sem mun rekja ferðir flugvéla með gervihnattartækni í rauntíma og senda upplýsingar um staðsetningu flugvélanna beint til jarðar.
Kerfið sem um ræðir er samstarfsverkefni fyrirtækjanna þriggja SITAONAIR, Aireon og FlightAware
og var í gær tilkynnt að Malaysia Airlines verður fyrst allra flugfélaga til að nota búnaðinn og fá aðgang
að staðsetningu flugvéla sinna á mínútu fresti hvar sem þær eru staddar á jarðarkringlunni.
Með ADS-B tækni frá Aireon verður fyllt upp í þá auðu bletti sem nú þegar eru í flugumferðarsvæðum yfir
hafsvæðum og afskekktum héröðum sem í dag koma ekki fram á ratsjá.
Ekki þarf að setja upp neinn viðbótarbúnað um borð í flugvélar Malaysia Airlines til að virkja þessa tækni
sem nefnist SITAONAIR´s AIRCOM® FlightTracker og mun félagið því geta séð staðsetningu á þeim flugvélum sem eru að fljúga í gegnum
svæði sem er ekki sýnilegt flugumferðarstjórum og það með mikilli nákvæmni.
ITAONAIR AIRCOM® FlightTracker verður tekið í notkun árið 2018
„Rauntímastaðsetning flugvéla um allan heim hefur verið langþráð markmið í flugheiminum og við erum mjög stolt
yfir því að verða fyrsta flugfélagið til að innleiða þessa tækni“, sagði Izham Ismail, flugstjóri og flugrekstarstjóri hjá
Malaysia Airlines.
„Malysia Airlines mun verða í lykilhlutverki þegar þessi þjónusta verður virkjuð á næstu mánuðum í ljósi
þeirra hræðilegu atburða sem áttu sér stað árið 2014 og mun félagið því geta séð rauntímastaðsetning, hvar
sem er á jörðinni, hvenær sem er“, segir Don Thoma, framkvæmdarstjóri Aireon.
Kerfið verður tilbúið til notkunar á næsta ári þegar lokið verður við að tengja kerfið við á sjötta tug Iridium NEXT
gervitungla en þann 14. janúar sl. var fyrsta NEXT gervihnettinum skotið á loft með SpaceX Falcon 9 eldflaug
með búnað innanborðs sem mun virkja gervihnatthrænt ADS-B dreifikerfi.
Alls verða 66 gervitungl sem verða staðsett á sporbaug jarðar sem munu ná að hylja öll svæði á hnettinum
inn í ADS-B kerfið sem hingað til hefur verið tengt við jarðstöðvar.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.