flugfréttir
Schiphol verður 2. stærsti flugvöllur Evrópu á þessu ári
- Tekur 2. sætið af Paris Charles de Gaulle
Frá Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam mun síðar á þessu ári færa sig upp um eitt sæti á lista yfir stærstu flugvelli Evrópu og mun hann verða annar stærsti flugvöllurinn í álfunni.
Í dag er Schiphol 3. stærsti flugvöllur Evrópu en allt bendir til þess að hann muni taka 2. sætið
af Charles de Gaulle flugvellinum sem er í dag sá næststærsti en á toppnum trjónir hinsvegar
Heathrow-flugvöllurinn í London.
14.1 milljón farþega fóru um Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam á fyrstu þremur mánuðum ársins
sem er 8.6% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra.
Júmbó-þota KLM á Polderbaan brautinni
Til samanburðar þá fóru 14.9 milljónir farþega um Paris Charles de Gaulle á fyrsta ársfjórðungi sem er 4.3% aukning
frá því árið 2016.
Þar af leiðandi er gert ráð fyrir að 69.1 milljónir farþega muni fara um Schiphol-flugvöll í ár á meðan 68.8 milljónir
munu fara um Charles de Gaulle sem mun koma hollenska flugvellinum í 2. sætið á eftir London
Heathrow.
Frá Schiphol-flugvellinum í Amsterdam er hægt að fljúga til yfir 300 áfangastaða í heiminum
sem gerir flugvöllinn 2. stærsta tengiflugvöll heims en enginn flugvöllur býður hinsvegar upp
á eins marga áfangastaði og Frankfurt (FRA) sem er 4. stærsti flugvöllur heims er kemur að
farþegafjölda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.