flugfréttir

Airbus afhendir fyrstu Airbus A321neo þotuna

- Virgin America fær fyrsta eintakið

24. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:03

Fyrsta Airbus A321neo þotan afhent til Virgin America

Airbus hefur afhent fyrsta eintakið af Airbus A321neo þotunni en það er Virgin America sem tók við fyrstu vélinni en flugfélagið bandaríska hefur eingöngu Airbus-þotur í flota sínum.

Airbus A321neo er arftaki og ný kynslóð af Airbus A321 þotunni sem hefur verið á markaðnum frá árinu 1994 en Virgin America var eitt fyrsta flugfélagið til að panta Airbus A321neo vélina.

Airbus A321neo er helmingi hljóðlátari en Airbus A321 og þá er vélin einnig helmingi umhverfisvænni en reglugerðir Evrópusambandsins kveða á um þegar kemur að kolefnalosun.

Fyrsta Airbus A321neo þotan sem afhent var til Virgin America er fyrsta af þeim 10 sem félagið á von á en vélin mun hinsvegar ekki verða lengi í litum félagsins þar sem Alaska Airlines tilkynnti nýlega að merki og litir Virgin America munu hverfa á næstu árum í kjölfar yfirtöku og sameiningu félaganna.

Alls hefur 41 flugfélag pantað 1.385 eintök af Airbus A321neo þotunni en Wizz Air hefur stærstu pöntunina sem telur 110 þotur og þá hafa bæði AirAsia og American Airlines pantað 100 vélar af þessari gerð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga