flugfréttir

Tvöfalt fleiri slösuðust í ókyrrð í fyrra í farþegaflugi vestanhafs

24. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:56

Það er alltaf best að hafa beltin spennt meðan setið er

Tvöfalt fleiri slys urðu á fólki um borð í farþegaflugi vegna ókyrrðar í lofti árið 2016 samanborðið við árið á undan samkvæmt nýrri tilkynningu frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).

Árið 2016 voru 44 sem slösuðust í ókyrrð í farþegaflugi vestanhafs en árið 2015 var 21 sem varð fyrir meiðslum vegna ókyrrðar.

Fæstir slösuðust árið 2006 þegar tólf hlutu meiðsl í ókyrrð en það mesta sem hefur mælst var árið 2009 þegar 117 slösuðust.

Í flestum tilvikum eru það farþegar sem slasast frekar en áhafnir en í fyrra var 3/4 af þeim sem slösuðust, farþegar um borð sem endurspeglar nauðsyn þess að hafa sætisólar spenntar meðan setið er.

Farþegarýmið getur verið hættulegur vinnustaður fyrir flugfreyjur og flugþjóna og þá sérstaklega þegar flogið er inn í heiðkviku sem á ensku nefnist „clear air turbulence“ en slík tegund ókyrrðar er þó ekki algeng.

Þegar vélar fljúga inn í slíka ókyrrð kemur högg á þær með þeim afleiðingum að lauslegir hlutir kastast um vélina og farþegar geti orðið fyrir þeim en afar erfitt er að sjá slík veðrabrigði fyrir þegar flogið er yfir skýjunum og þar af leiðandi kemur þetta flugmönnum iðulega að óvörum þar sem fyrirbærið sést ekki á radar vélanna.

Brunasár og brákaður hryggjaliður eftir ókyrrð

Þann 13. desember flaug flugvél frá jetBlue inn í skyndilega ókyrrð í námunda við fjöllinn í nágrenni Denver sem varð til þess að flugfreyja um borð í vélinni kastaðist upp í loftið og féll niður og rakst með andlitið í borð í eldhúsrými vélarinnar með þeim afleiðingum að hún brákaðist í andliti.

Mikil ókyrrð reið yfir aðra flugvél frá jetBlue þann 11. ágúst í fyrra sem varð til þess að þrír í áhöfn og 24 farþegar slösuðust í vél sem var á leið frá Boston til Sacramento og þurfti vélin að lenda í Rapid City í South Dakota.

Þá endaði einn farþegi með brákaðan hryggjarlið eftir „clear air turbulence“ ókyrrð um borð í vél American Airlines í ágúst í fyrra sem var á leið til Cayman-eyja og mánuði á undan flaug flugvél frá jetBlue gegn um svipaða ókyrrð á leið til Barbados á meðan flugfreyja var að bera pott með sjóðandi heitu vatni sem hún fékk yfir sig með þeim afleiðingum að hún hlaut brunasár.

Þann 26. júlí í fyrra fótbrotnaði flugfreyja sem datt í eldhúsrými á Embraer-þotu frá United Express sem flaug í gegnum skyndilega ókyrrð í að flugi að flugvellinum í Cleveland.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga