flugfréttir
TF-NEO lent í Keflavík
- Fyrsta Airbus A320neo þota WOW air
TF-NEO í snjókomunni á Keflavíkurflugvelli í dag
TF-NEO, fyrst Airbus A320neo þota WOW air, kom til landsins í dag en vélin lenti á Keflavíkurflugvelli á slaginu fjögur nú síðdegis eftir 3:30 klukkustunda afhendingarflug frá Toulouse.
Þetta er fyrsta Airbus A320neo þota í flugsögu Íslands og nýjasta farþegaþotan á landinu en vélin
var smíðuð í janúar á þessu ári og er því yngri en 3 mánaða.
Það var ekki beint sumarlegt veður sem tók á móti TF-NEO en þegar hún lenti í Keflavík í snjókomu og hiti við frostmark.
Vélin mun gangast undir innleiðingarferli á næstu dögum og er fyrsta áætlunarflugið með vélinni áætlað
næstkomandi miðvikudag, þann 3. maí.
Fyrsti áfangastaðurinn sem TF-NEO mun fljúga til verður Kaupmannahöfn að morgni 3. maí og síðar
um daginn mun vélin fljúga til Montréal í Kanada.
„Það er stórkostleg tilfinning og forréttindi fyrir okkur að geta boðið farþegum okkar að fljúga með
glænýjum vélum á jafn hagstæðum kjörum og raun ber vitni“, segir Skúli Mogensen, stofnandi WOW air.
TF-NEO verður aðallega notuð á flugi til Stokkhólms, Kaupmannahafnar og til Montréal fyrst um sinn
en vélin mun einnig fljúga til annarra áfangastaða síðar meir.
WOW air hefur upp á síðkastið haft tólf Airbus-þotur í flota sínum og er TF-NEO því þrettánda vélin en von er á fjórum þotum til viðbótar í vor og mun flotinn því fara upp í 17 vélar í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.