flugfréttir
AG-600 sjóflugvélin tilbúin fyrir fyrsta flugið
AG-600 sjóflugvélin kínverska er framliedd af Aviation Industry Corporation of China (AVIC)
Síðastliðinn laugardag fóru fram aksturstilraunir á stærstu sjóflugvél sem framleidd hefur verið í Kína um er að ræða AG-600 vélina sem hefur verið í framleiðslu þar í landi sl. 8 ár.
AG-600 er einnig stærsta sjóflugvélin í heimi, sem framleidd er í dag, en henni er ætlað að berjast við skógarelda og sinna björgunaraðgerðum á sjó en vélin getur tekið 12 tonn af vatni á tuttugu sekúndum með hámarksflugtaksþunga upp á 53 tonn.
AV-600 er 36.9 metrar á lengd og hefur 38.8 metra langt vænghaf og er hún álíka stór og Boeing 737 og Airbus A320.
Það er flugvélaframleiðandinn Aviation Industry Corporation of China (AVIC) sem
framleiðir vélina sem nú þegar hefur verið kölluð „sjóskrímslið í Kína“ en þrátt
fyrir það er hún langt frá því að vera jafnstór og „Caspian Sea Monster“.
Jómfrúarflugið er svo áætlað um miðjan maí frá flugvellinum í borginni Zhuhai.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.