flugfréttir

Tveir starfsmenn ICON Aircraft létust í flugslysi í Kaliforníu

- A5 sportsjóflugvél félagsins brotlenti á bakka stöðuvatns

9. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:37

ICON A5 sportsjóflugvélin

Tveir starfsmenn hjá flugvélaframleiðandanum ICON Aicraft létu lífið í gær í flugslysi er sportsjóflugvél af gerðinni A5 brotlenti við bakka Berryessa-vatnsins í Kaliforníu í gær.

Kirk Hawkins, framkvæmdarstjóri Icon Aircraft, gaf út yfirlýsingu í gær skömmu eftir slysið þar sem hann staðfesti að þeir tveir sem voru um borð í vélinni voru starfsmenn fyrirtækisins.

Vélin brotlenti skammt undan höfuðstöðvum Icon Aircraft í bænum Vaceville sem er skammt norðaustur af San Francisco og hefur samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hafið rannsókn á slysinu.

Myndir af slysstað í gær við bakka Berryessa-vatnsins

Flugvélaframleiðandinn hefur reglulega þjálfað nýja flugmenn á ICON A5 vélina á Berryessa-vatninu en vélin er tveggja sæta flugvél sem er smíðuð úr koltrefjablöndu en vélin flaug sitt fyrsta flug árið 2008.

Slysið átti sér stað aðeins mánuði eftir að önnur A5 flugvél sökk á vatni í Flórída eftir mjög harða lendingu þann 3. apríl sl. en flugmaður og farþegi hans, sem voru um borð í þeirri vél, sakaði ekki.

Í dag hefur Icon Aircraft fengið pantanir í 1.850 eintök af vélinni og er búið að smíða sjö ICON A5 flugvélar.

Fleiri myndir af ICON A5 flugvélinni:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga