flugfréttir
Airbus A350-900ULR verður langdrægasta farþegaþota heims
- Airbus tilkynnir að vélin mun hafa flugþol upp á 17.965 kílómetra
Airbus A350-900 þota Singapore Airlines
Airbus hefur tilkynnt að langdræg útgáfa af Airbus A350 þotunni mun koma til með að hafa flugþol upp á 17.965 kílómetra og verður sú vél því langdrægasta farþegaþota heims þegar hún kemur á markaðinn á næsta ári en við það mun Boeing 777-200LR færa sig í 2. sætið er kemur að flugþoli.
Airbus kynnti Airbus A350-900ULR (Ultra-Long Range) þotuna í október árið 2015 og var Singapore Airlines
fyrsta flugfélagið til að leggja inn pöntun í þotuna en flugvélaframleiðandinn greindi aldrei frá því hversu mikið
flugþol þotan myndi hafa.
Singapore Airlines sagði að Airbus A350-900ULR myndi hafa flugdrægi upp á 16.100 kílómetra en Airbus segir að
það hafi verið byggt á fjarlægðinni frá Singapore til New York sem er flug sem Singapore Airlines ætlar sér að byrja að
fljúga aftur þegar A350-900ULR kemur á markaðinn.
Flugið milli Singapore Airlines og Newark-Liberty flugvallarins í New Jersey var lengsta áætlunarflug heims og hefur
það met ekki verið slegið síðan að félagið hætti því flugi árið 2013 en þá notaði félagið þotur af gerðinni Airbus A340-500
til flugsins.
Hirðir titilinn af Boeing 777-200LR sem er sú langdrægasta í dag
Airbus A340-500 hefur flugþol upp á 16.700 kílómetra sem er aðeins 600 km minna flugdrægi en Boeing 777-200LR
sem í dag er langdrægasta farþegaþotan.
Singapore Airlines pantaði árið 2015 sjö eintök af Airbus A350-900ULR vélinni og mun félagið fá fyrstu eintökin
afhent á næsta ári en meðal flugfélaga, sem eru að íhuga að panta ULR-útgáfuna, er ástralska flugfélagið Qantas.
Airbus A350-900ULR kemur með auknum hámarksflugtaksþunga auk þess sem breytingar verða gerðar á hönnun vélarinnar til auka eiginleika hennar á flugi og þá verður aukaeldsneytistanki komið fyrir í vélinni og mun vélin því geta tekið 165.000 lítra af eldsneyti.
Airbus A350-900 brennir um 5.8 tonnum af eldsneyti á hverja klukkustund en A350-900ULR þarf að geta borið
24 tonn af eldsneyti til viðbótar til að geta flogið í 19 klukkustundir en hefðbundin A350-900 þota hefur flugþol
upp á 15 klukkustundir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.