flugfréttir

737 MAX vélarnar kyrrsettar vegna möglegs galla í hreyfli

- Mögulegar sprungur fundust við eftirlit á hverfladiski í LEAP-1B hreyfli

10. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:13

Boeing 737 MAX 9 tilraunavél

Boeing tilkynnti í dag að allar flugprófanir með Boeing 737 MAX þoturnar hafa verið settar á hilluna eftir að upp komst um mögulegar sprungur í innvolsi LEAP-1B hreyfilsins sem framleiddur er af CFM International.

Allur Boeing 737 MAX tilraunaflugfloginn hefur verið kyrrsettur á meðan þar sem nauðsynlegt er að gera úttekt á hreyflum vélanna en Boeing hefur nú þegar smíðað fimmtán eintök af Boeing 737 MAX vélunum og þar af 5 tilraunavélar.

CFM International gerði Boeing viðvart um að mögulegur galli hefði fundist í diski í lágþrýstingshverfilskerfi hreyfilsins en þetta á þó aðeins við um nokkur upplög af hreyflinum en ekki nýjustu hreyflana, sem hafa verið afhentir til Boeing í Renton.

Það var gæðaeftirlitsmaður sem kom auga á vandamálið í framleiðslunni er hann gerði úttekt á verksmiðju sem framleiðir diska í hverfil LEAP-1B hreyfilsins og komu í ljós frávík í framleiðsluferlinu sem gæti leitt til þess að sprungur fara að myndast.

LEAP-1B hreyfillinn í verksmiðju CFM International

CFM International er í eigu GE Aviation og franska fyrirtækisins Safran sem er ábyrgt fyrir framleiðslu á diskunum í lágþrýstingshverfilskerfinu.

Tilraunaflugfloti Boeing 737 MAX vélanna hefur flogið samtals yfir 2.000 klukkustundir og á engum tímapunkti hafa komið upp nein atvik varðandi hreyfla vélanna en þá hefur LEAP-1B hreyfilinn gengið í gegnum 300 tilraunatíma á flugi og þar að auki er búið að prófa hreyfilinn í mörg þúsund klukkustundir á jörðu niðri.

Fyrstu afhendingar á 737 MAX á áætlun í þessum mánuði

CFM hefur sent eftirlitsteymi í verksmiðjurnar þar sem diskarnir eru framleiddir til þess að sjá til þess að engir fleiri diskar séu framleiddir með mögulegum galla en þar sem skoða þarf marga hreyfla bæði í verksmiðjum í Bandaríkjunum og í Frakklandi þá gæti tekið smá tíma að fá niðurstöðu í málið.

Boeing segir að þetta muni ekki hafa áhrif á afhendingar en malasíska lágfargjaldafélagið Malindo Air mun fá fyrsta eintakið afhent í þessum mánuði og er fyrsta afhendingin á áætlun.

Þá mun annað flugfélag einnig fá sína fyrstu Boeing 737 MAX í þessum mánuði en þær vélar, ásamt vélum Malindo Air, koma ekki með þeim hreyflum sem gætu verið með mögulegum galla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga