flugfréttir
Airbus á von á mun fleiri pöntunum í A350-1000
Airbus A350-1000 tilraunaþota
Airbus er sannfært um að flugvélaframleiðandinn eigi eftir að fá margar pantanir til viðbótar á næstunni í Airbus A350-1000 þotuna þar sem mörg flugfélög eiga eftir að gera upp hug sinn varðandi endurnýjun á stórum breiðþotum.
Þetta segir Mark Pearman-Wright, markaðsstjóri yfir leigu- og fjárfestingardeild Airbus, sem segir
að stærsta útgáfan af Airbus A350 þotunni sé nú komin með tólf „góða viðskiptavini“ og munu fleiri
fylgja í kjölfarið á næstunni.
Alls hafa 52 viðskiptavinir og flugfélög pantað 811 eintök af Airbus A350 þotunni og er búið
að afhenda í dag yfir 80 þotur eða um 1/10 af þeim vélum sem hafa verið pantaðar.
Tólf flugfélög hafa pantað 211 eintök af A350-1000 vélinni og er Qatar Airways með stærstu pöntunina
í 37 þotur af þessari gerð.
Pearman-Wright segir að mörg flugfélög séu að skoða möguleika á því að skipta út Boeing 777-300ER
þotunni fyrir Airbus A350-1000 og þá séu einnig mörg flugfélög sem gætu breitt pöntun sinni í
Airbus A350-900 yfir í stærri gerðina til að koma til móts við aukin umsvif.
Qatar Airways mun fá fyrstu Airbus A350-1000 þotuna afhenta síðar á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.