flugfréttir

Einkaþota fórst í iðnaðarhverfi í New Jersey

- Tveir flugmenn létust - Var í aðflugi að Teterboro-flugvelli

16. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 01:28

Mynd af einkaþotunni sem fórst en hún var af gerðinni Learjet 35A

Tveir eru látnir eftir flugslys sem átti sér stað í gær er einkaþota af gerðinni Learjet 35A fórst í iðnaðarhverfi í Carlstadt í Bergen-sýslu í New Jersey í Bandaríkjunum.

Vélin var í aðflugi að Teterboro-flugvellinum um hálf-fjögurleytið að austurstrandartíma þegar hún brotlenti í miðju iðnaðarhverfi í um eins kílómeters fjarlægð frá flugbrautinni.

Eldur kom upp í nokkrum byggingum auk þess sem bílar loguðu en vélin fór meðal annars í gegnum rafmagnslínur áður en hún skall til jarðar.

Myndir af vettvangi slyssins



Að sögn sjónarvotta sást eldhnöttur stíga til himins úr mikilli fjarlægð og þeir sem voru næst slysstaðnum sögðu að lítið hefði verið eftir af vélinni en greina mátti hreyfla vélarinnar í bálinu.

Nokkrir slökkviliðshópar voru sendir á svæðið auk þess sem sérfræðingar frá bandrískum flugmálayfirvöldum (FAA) og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) voru send á vettvang.

Vélin fór í loftið frá flugvellinum í Philadelphia með tvo flugmenn um borð og létust þeir báðir en engir farþegar voru í vélinni.
Flugvélin var smíðuð árið 1981 og var því 36 ára gömul en eigandi vélarinnar er A&C Big Sky Aviation sem hefur höfuðstöðvar í Billings í Montana.

Seinast þegar vitað var um fluglag vélarinnar áður en hún fórst þá var hún á 150 hnúta hraða í 600 fetum í snarpri beygju í lokaaðflugi inn á brautina.

Ekkert neyðarkal barst frá vélinni. Samkvæmt veðurupplýsingum þá var nokkuð mikill vindur er vélin var að lenda en aðrar vélar höfðu ekki átt í erfiðleikum með lendingu sökum veðurs.

Hér að neðan má sjá myndskeið úr öryggismyndavél þar sem sést reykur stígur til himins í fjarska eftir að vélin fórst - (mínúta 1:29)







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga