flugfréttir

EASA tekur Benin og Mozambique af svarta listanum

- Fjögur flugfélög bætast við

22. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:54

Boeing 737-200 þota LAM Mozambique Airlines

Flugmálayfirvöld í Evrópu hafa uppfært lista yfir þau flugfélög sem fá ekki að fljúga til evrópskra flugvalla í þeim löndum sem eru aðilar að Evrópusambandinu.

Öll flugfélög í Benin og í Mozambique fá nú að fljúga til Evrópu og hafa löndin tvö verið fjarlægð af listanum.

Ekki þótti ástæða lengur til að vera með löndin á bannlistanum þar sem þau hafa bæði náð að bæta öryggi í fluginu sem uppfylla nú skilyrði Evrópusambandins.

Enn eru 16 lönd í Afríku á listanum sem hafa ekki náð að auka flugöryggi í sínum löndum og fá flugfélög þeirra landa því ekki að fljúga til Evrópu.

„Það gleður okkur að við getum fjarlægt öll flugfélög í Benin og Mozambique af öryggislistanum sem endurspeglar að aðgerðir til að bæta úr flugöryggismálum skila sér“, segir í yfirlýsingu frá EASA.

Fjögur flugfélög bættust hinsvegar við á svarta listann sem eru Med-View Airlines í Nígeríu, Mustique Airways í Karíbahafi, Air Urga í Úkraínu og Air Zimbabwe.

Meðal annarra landa sem eru á listanum og fá ekki að fljúga til Evrópu eru Afghanistan, Angóla, Kongó, Djibouti, Miðbaugs-Gínea, Eritrea, Gabon, Indónesía, Kyrgyzstan, Líbería, Líbýa, Nepal, Sao Tomé and Principe, Sierra Leone og Súdan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga