flugfréttir
Einkaþota Elvis Presleys verður seld á uppboði
- Lockheed JetStar-þotan hefur verið geymd í eyðimörkinni í Roswell í 30 ár
Einkaþotan verður seld á uppboði þann 27. maí
Einkaþota, sem var eitt sinn í eigu poppgoðsins Elvis Presley, verður seld á uppboði í næstu viku eftir að hafa varið 30 árum í flugvélakirkjugarði í eyðimörkinni í Nýju-Mexíkó.
Einkaþotan, sem er rauð á lit, er af gerðinni Lockheed JetStar, smíðuð
árið 1962 og er hún því 55 ára gömul.
Vélin verður seld hæstbjóðanda á uppboði sem fer fram þann 27. maí
en upphafsboð er í 10.000 bandaríkjadölum sem samsvarar 993.000 krónum en búast má við því að vélin verði seld á mun hærra verði.
">
Farþegarýmið í Lockheed JetStar einkaþotu Elvis Presleys
Ekki verður hægt að fljúga þotunni af uppboðsstaðnum þar
sem búið er að fjarlægja hreyfla hennar.
Það er fyrirtækið GWS Auction Inc. í Kaliforníu sem mun bjóða
vélina upp en einkaþotan er metin á 198 til 340 milljónir króna.
„Þetta er týnda þotan hans Elvis sem var honum mjög mikilvæg en
hann átti þotuna ásamt föður sínum, Vernon“, segir á vefsíðu
uppboðsfyrirtækisins.
Netmiðillinn Celebrity Insider greindi frá því á laugardag
að hörðustu Elvis-aðdáendurnir vonast flestir til þess að
Priscilla Presley, fyrrverandi eiginkona goðsins, muni kaupa þotuna
og koma henni fyrir á safni eða á Graceland í Memphis.
Einkaþotan er núna í eigu einkaaðila sem vill ekki koma fra
undir nafni en Elvis átti einnig aðrar einkaþotur.
Innréttingarnar í einkaþotunni voru sérstaklega hannaðar að ósk
Elvis sem lét innrétta hana eftir sínu höfði með gullhúðuðu tréverki,
rauðu teppi á gólfi og rauðum sætum með flauel-áklæði.
Vélin er ein af þeim 204 þotum sem Lockheed framleiddi í samvinnu
við JetStar frá árinum 1957 og 1978.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.