flugfréttir
Fjöldaframleiðsla hefst á Pilatus PC-24 einkaþotunni
- Biðlisti eftir fyrstu einkaþotu Pilatus - Hafa lokað fyrir pantanir í bili
Fyrsta eintakið af Pilatus PC-24 þotunni var ýtt úr samsetningu í Sviss árið 2014
Svissneski flugvélaframleiðandinn Pilatus hefur hafið fjöldaframleiðslu á Pilatus PC-24 einkaþotunni en þrjár tilraunaþotur af verið smíðaðar af vélinni sem flaug sitt fyrsta flug þann 11. maí árið 2015.
Pilatus PC-24 er fyrsta þotan sem Pilatus hefur framleitt en hingað til hefur vinsælasta
flugvél framleiðandans verið Pilatus PC-12 sem er eins hreyfils skrúfuflugvél sem hefur
selst í yfir 1.400 eintökum frá því hún kom á markaðinn árið 1994.
Það er bandaríska fyrirtækið PlaneSense sem mun fá fyrstu Pilatus PC-24 þotuna
afhenta fyrir lok þess árs en nú þegar er búið að mála vélin í litum viðskiptavinarins
Fyrsta eintakið af PC-24 þotunni hefur verið málað í litum PlaneSense
Það er BMW Designworks sem hefur hannað farþegarýmið um borð í Pilatus PC-24 þotunni
og stendur viðskiptavinum til boða að velja úr sex mismunandi innréttingum sem nefnd
eru eftir vinsælum skíðaáfangastöðum í Sviss.
Þrjár PC-24 tilraunaþotur hafa til samans lokið við 1.525 klukkustundir af flugprófunum
í 950 flugferðum.
Búið er að panta 84 eintök af þotunni en Pilatus hefur lokað fyrir pantanir í þotuna í bili
og hefur myndast biðlisti eftir vélinni en opnað verður fyrir pantanir að nýju á næstunni. Pilatus ætlar sér að framleiða yfir 4.000 eintök af PC-24 þotunni.
Þrjár tilraunaþotur hafa verið smíðaðar af Pilatus PC-24
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.