flugfréttir

Ólíklegt að Alaska Airlines haldi Airbus-þotum Virgin America

- Munu sennilega halda sig við Boeing-flota áfram

24. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:38

Flugvélar Alaska Airlines og Virgin America

Alaska Airlines sér ekki fram á að hafa Airbus-þotur í flota sínum en félagið mun að öðru leyti taka yfir flugflota Virgin America eftir 2 ár þegar félagið mun sameinast rekstri Alaska Airlines.

„Ég held að það séu mjög litlar líkur á því að við munum skipta yfir í Airbus“, segir Brandon Pedersen, fjármálastjóri Alaska Airlines, en flugfélagið bandaríska ætlar að haldið sig við eina tegund af farþegaþotu sem kemur með sömu tegundaráritun.

Allur flugfloti Alaska Airlines samanstendur af Boeing 737 þotum en félagið tók í fyrra yfir rekstur Virgin America sem hefur eingöngu Airbus A320 þotur í flotanum.

Alaska Airlines ætlar ekki að viðhalda áfram nafni og ímynd Virgin America og mun félagið renna saman við Alaska Airlines árið 2019 og hafa margir spurt sig að því hvað félagið ætlar að gera við Airbus-vélarnar og hvort félagið ætli þá að hafa bæði Boeing 737 og A320 í flotanum.

„Það eru frekar litlar líkur á því og þá sérstaklega í ljósi þess að Boeing-vélarnar hafa verið yfirráðandi í rekstrinum“, segir Pedersen.

Petersen segir að samt sem áður sé ekki búið að taka neina ákvörðun og hafi félagið að vísu þau forréttindi að geta vegið og metið kosti vélanna á meðan þeir hafa báðar tegundirnar í rekstri en gert er ráð fyrir því að á endanum verði áfram ein flugvélategund sem verður fyrir valinu.

Alaska Airlines hefur 154 Boeing 737 þotur í flotanum á meðan Virgin America hefur 63 þotur af gerðinni Airbus A320, Airbus A321neo og A319.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga