flugfréttir

Richard Branson ýjar að stofnun nýs flugfélags í Bandaríkjunum

25. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

Richard Branson kom sl. sunnudag fram í viðtal á Bloomberg TV þar sem hann ýjaði að því að mögulega gæti hann stofnað nýtt flugfélag í Bandaríkjunum

Sir Richard Branson hefur gefið í skyn að það gæti alveg verið möguleiki fyrir því að hann ráðist í stofnun nýs flugfélags í Bandaríkjunum í kjölfar yfirtöku Alaska Airlines á Virgin America sem Branson stofnaði árið 2004.

Branson hefur ekki verið par sáttur við yfirtökuna á félaginu og sérstaklega þar sem Alaska Airlines ætlar sér að leggja niður nafn og merki félagsins árið 2019 og sameina rekstur þess við Alaska Airlines.

Þá hefur Alaska Airlines lýst því yfir að félagið ætli ekki að greiða gjöld fyrir notkun á merki Virgin America til ársins 2030 eins og lög gera ráð fyrir samkvæmt undirrituðum samningi.

Richard Branson, kom nýlega fram í viðtali á Bloomberg TV þar sem hann sagði að Alaska Airlines yrði að standa við sitt og greiða leyfisgjöld af merkinu til ársins 2030 en þó yrðu þeir ekki að gera það ef hann stofnar nýtt flugfélag í Bandaríkjunum.

Fréttamenn spurðu Branson hvort hann sé með áform um að stofna nýtt flugfélag vestanhafs og svaraði Branson: „Watch this space“ og ýjar hann að því að það sé aldrei að vita.

„Það er alltaf pláss fyrir nýtt flugfélag í Bandaríkjunum“, segir Samuel Engel, markaðssérfræðingur í flugmálum, en hann tekur fram að samkeppnin bjóði sérstaklega upp á það þar sem nokkrir samrunar flugfélaga hafa átt sér stað að undanförnu vestanhafs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga