flugfréttir

Flugmenn American segja nýja búninga skaðlega heilsunni

- Vilja að félagið skipti út fatnaði frá öðrum framleiðanda

27. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:08

Búningarnir eru framleiddir af fyrirtækinu Twin Hill

Flugmenn American Airlines eru enn í ströggli við stjórn félagsins vegna þeirra búninga sem þeir klæðast en fjölmargir flugmenn hafa kvartað undan óþægindum undan efninu í fatnaðinum.

Málið var tekið fyrir á aðalfundi innan stjórnar American Airlines á dögunum en Joe Catan, flugstjóri hjá félaginu, tjáði yfirmönnum sínum að hann finni frá öndunarerfiðleikum og kláða í kjölfar búninganna og margir aðrir flugmenn hafi sömu sögu að segja.

Catan segir að hann mæti til starfa fullfrískur en þegar líður á flugið fái hann öndunarkvilla, kláða og höfuðverk - „Ég vill að öllum sé komið úr þessum fatnaði sem fyrst. Þetta eru ekki góðar aðstæður að starfa við“, segir Catan.

Catan telur að yfir 9.000 starfsmenn hafi sömu sögu að segja en hann gerir ráð fyrir því að fjöldinn gæti verið tvisvar til þrisvar sinnum meiri.

Í janúar á þessu ári var einnig greint frá því að óvenju margar flugfreyjur og flugþjónar hjá American Airlines höfðu veikst um borð í flugi eða fundið fyrir óþægindum sl. mánuði og þar á meðal fundið fyrir pirringi í augum og hálsi og höfuðverk.

Áhafnir American Airlines byrjuðu að klæðast búningunum nýju í september í fyrra en tilkynnt hefur verið að yfir 2.300 flugfreyjur og flugþjónar hafi fundið fyrir ýmiskonar heilsufarsvandamálum sem talið er að rekja megi til búningsanna.

Búningarnir eru framleiddir af fyrirtækinu Twin Hill sem framleiðir m.a fatnað fyrir áhafnir flugfélaga en Catan bendir á að flugmenn hjá Alaska Airlines hafi fundið fyrir sambærilegum óþægindum árið 2011 og þá hafi stjórn félagsins skipt búningunum út hið snarasta.

Catan segir að Alaska Airlines hafi gengið skrefinu lengra og afeitrað vélarnar, þrifið stjórnklefa og sæti sem flugfreyjur og flugþjónar sitja í á meðan flugvél er í flugtaki eða lendingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga