flugfréttir
Dassault Falcon X8 flaug sitt lengsta beina flug
Dassault Falcon X8 einkaþotan
Dassault Falcon 8X einkaþotan flaug á dögunum lengsta flug sem þotan hefur nokkurn tímann flogið er hún flaug frá London til Singapore í beinu flugi.
Dassault Falcon 8X hefur flugdrægi upp á 11.945 kílómetra og flugvélaframleiðandinn franski segir að slíkt flugþol bjóði upp á einstök þægindi fyrir farþega og viðskiptavini sína og þá sérstaklega þegar flogið er langflug til að mynda milli Asíu og Evrópu.
Falcon 8X vélin er langdræg viðskipta- og einkaþota með háu farþegarými og er hún lengri en fyrirrennari hennar, Falcon 7X, sem kom á markaðinn árið 2005.
Dassault afhenti fyrsta eintakið af Falcon X8 einkaþotunni í október í fyrra til gríska fyrirtækisins Amjet Executive.
Frá því þotan kom á markaðinn þá hafa verið gerðar nokkrar uppfærslur á henni og þá sérstaklega er kemur að eiginleikum til að lenda í hliðarvindi auk þess sem unnið hefur verið að því að votta vélina fyrir flug til og frá London City flugvellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.