flugfréttir
SWISS fær sína fyrstu CS300 þotu frá Bombardier
CS100 þota SWISS International Air Lines
SWISS International Air Lines fékk í gær sína fyrstu CSeries CS300 þotu afhenta frá Bombardier.
SWISS er því fyrsta flugfélagið til að fá bæði CS300 og CS100
vélarnar afhentar og hefja áætlunarflug með báðum tegundunum en félagið
hefur fengið átta CS100 þotur frá Bombardier.
Thomas Klühr, framkvæmdarstjóri flugfélagsins svissneska, segir að
með blöndu af báðum vélunum geti félagið notað þær til mismunandi
áfangastaða á stuttum flugleiðum innan Evrópu eftir mismunandi sætanýtingu
á hverri flugleið.
Fyrsta CS300 þota SWISS mun fljúga sitt fyrsta flug þann 1. júní
frá Genf til London Heathrow.
AirBaltic fékk fyrstu CS300 þotuna afhenta og hefur það félag fengið þrjár
slíkar vélar frá Bombardier.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.