flugfréttir
Panta 30 C919-þotur
C919 þotan frá COMAC
Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC hefur fengið stóra pöntun í C919 farþegaþoturnar frá flugvélaleigunni Everbright Financial Leasing í Kína.
Everbright undirritaði í gær samning um kaup á 30 C919-þotum frá COMAC en
þotan flaug sitt fyrsta flug þann 5. maí og er stefnt á að vélin komi á markaðinn árið 2020.
Með pöntun Everbright Financial Leasing er COMAC komið með pantanir í tæpar
600 þotur en 21 viðskiptavinur hefur pantað C919-þotuna; tuttugu kínversk
fyrirtæki og eitt bandarískt.
Af viðskiptavinunum 21 þá eru aðeins 7 flugfélög sem hafa pantað vélina
en 14 viðskiptavinir eru fjárfestingafyrirtæki, flugvélaleigur og bankar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.