flugfréttir
Eftirspurn eftir breiðþotum dvínar töluvert
- Algengara að flugfélög hætti við eða fresti afhendingum
Nýjar breiðþotur á athafnasvæði Boeing í Everett
Eftirspurnin eftir nýjum breiðþotum bæði frá Airbus og Boeing hefur dvínað töluvert að sögn Scott Hamilton, markaðsfræðings í flugmálum hjá fyrirtækinu Leeham LLC í Seattle.
Gert er ráð fyrir að pantanir í breiðþotur verði mun færri á flugsýningunni í París
sem hefst eftir helgi og segir Hamilton að Airbus A380 gæti sungið svanasöng
sinn í ár þar sem pantanir í vélina hafa nánast „þornað upp“ að undanförnu.
Hamilton telur að framtíð risaþotunnar sé í höndum Emirates sem hefur verið orðað við
aðra pöntun í fleiri Airbus A380 en hann telur að Emirates muni ekki leggja inn pöntun í nýjar
þotur á Paris Air Show.
Dregið hefur úr pöntunum á breiðþotum á borð við Airbus A330, A350 og bæði Boeing 777
og 777X frá því sem áður var og þá er orðið algengara að flugfélög séu að hætta við pantanir
í breiðþotur eða fresta afhendingum.
David Strauss, sérfræðingur hjá UBS, segir að eftirspurn og framleiðsla á breiðþotum bæði hjá Boeing
og Airbus sé 25% undir þeim mörkum sem menn sáu fyrir sér fyrir að yrði fyrir nokkrum árum
síðan.
Skýrsla frá Fitch Ratings er á sömu nótum þar sem séð er fram á að færri pantanir verði
gerðar í nýjar þotur á þessu ári þrátt fyrir að afhendingum muni fjölga áfram í takt
við aukna flugumferð í heiminum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.